Psalms 57

1Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Miktam eftir Davíð, þá er hann flýði inn í hellinn fyrir Sál. 2Ver mér náðugur, ó Guð, ver mér náðugur! Því að hjá þér leitar sál mín hælis, og í skugga vængja þinna vil ég hælis leita, uns voðinn er liðinn hjá. 3Ég hrópa til Guðs, hins hæsta, þess Guðs, er kemur öllu vel til vegar fyrir mig. 4Hann sendir af himni og hjálpar mér, þegar sá er kremur mig spottar. [Sela] Guð sendir náð sína og trúfesti. 5Ég verð að liggja meðal ljóna, er eldi fnæsa. Tennur þeirra eru spjót og örvar, og tungur þeirra eru bitur sverð. 6Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina! 7Þeir hafa lagt net fyrir fætur mína, sál mín er beygð. Þeir hafa grafið gryfju fyrir framan mig, sjálfir falla þeir í hana. [Sela] 8Hjarta mitt er stöðugt, ó Guð, hjarta mitt er stöðugt, ég vil syngja og leika. 9Vakna þú, sál mín, vakna þú, harpa og gígja, ég vil vekja morgunroðann. 10Ég vil lofa þig meðal lýðanna, Drottinn, vegsama þig meðal þjóðanna, 11því að miskunn þín nær til himna og trúfesti þín til skýjanna. [ (Psalms 57:12) Sýn þig himnum hærri, ó Guð, dýrð þín breiðist yfir gjörvalla jörðina. ]
Copyright information for Icelandic